Elísabet Stefánsdóttir Svogerslevvej 9 2700 København Danmark ----------------------- Heimasími: 0045 35 11 34 25 Lísa gsm: 0045 22 29 32 73 Dagur gsm: 0045 22 46 29 75 E-mail: lisa[a]lisastefans.com Lisa Msn: lisaskvisa1[a]hotmail.com Lisa MySpace Senda FRÍTT SMS í DK Dagur unnusti matur.dagur.org Gengid Mitt Afrika Ladies Sara Perverta Gullmoli Guðbjargar Sarah Cassata Eva á Ítalíu ZARA Chicas Hrebbna Carlsberg Oløf Inga Lilja Sif Ztjani -Væntanlegt-Margrethe-skolen Vouge Elle Cosmopolitan Dazed Digital Fashion Magazine Fashion 156 Designers A-Z Betsey Johnson Patricia Field Arne Jacobsen Fashion Era Listasafn Íslands Listasafn Reykjavíkur Danish Design Center Glyptoteket KunstOnline Hamburger Kunsthalle Louvre safnið Design Museum London Museum of modern art Nokkrar gamlar myndir 2007Febrúar Mars Apríl Maí Júní Júní DK Júlí - vika 27 Júlí - vika 28 Júlí - vika 29 Júlí - vika 30 Ágúst - vika 31 Ágúst - vika 32 Ágúst - vika 33 Ágúst - vika 34 September - vika 38 September - vika 39 Október - vika 40 2006Apríl Maí Júlí Ágúst Nóvember Gulur tvinniÉg hef ekkert merkilegt að segja frá n... Elsku mamma mínGleðilegan mæðradag! Saumaskapur og sólskínÞað er allt farið á fullt í ... Nú byrja lætin! ;)Jæja, þá er nú nóg búið að vera ... Sólskín og freknur =D Já hérna í Danmörku er e... Fuglasöngur og sólskínJá nú er hann Dabbi litli vi... Korter í sumar.. ;DJæja, þá er maður búin að róa s... Bonjour París! - le ferðasaga!Mánudagur Ferðin by... Parísarmyndir Fyrst set ég hérna inn nokkrar myndi... París á morgun!! Nóg hefur verið að gera hjá mér ... |
mánudagur, maí 19, 2008
Et lille hus! Fyrir þá sem ekki voru búin að frétta það, þá fengum við Dagur loksins íbúð eftir langa og erfiða leit! Okkur var boðið að skoða íbúð á laugardaginn, en áttum samt ekki að gera okkur of háar vonir. Þegar við vorum mætt þarna á svæðið var þetta ekki íbúð heldur lítið hús í garði hjá eldri hjónum. Þetta svæði heitir Bronshøj, eða s.s. Husum og er þetta svona villu-íbúðarhverfi, voðalega krúttleg hús, rólegt, rétt við skóg og á, en líka 3 mínutur frá lestarstöðinni. Þetta er í strætó ca. 12 min lengra frá -þar sem við búum núna, en með lestinni þaðan erum við í 15 min í bæinn. Við flytjum þarna inn 1.ágúst. Húsinu fylgja svaakalega margar og skemmtilegar sögur, en erum við búin að fá að heyra nokkrar af þeim. Húsið var fyrst byggt 1928 og var þá 49ferm., svo hefur verið byggt við húsið og er örugglega 50-60 ferm. núna, ef ekki meira. Parið átti heima þarna þegar þau voru ung, eignuðust börn og ákváðu svo að byggja sér bara stærri hús á lóðina! Það er bara svona mjög stórt en venjulegt einbýlishús. Eftir að börnin þeirra fengu öll að búa í litla húsinu hvert fyrir sig, fóru þau að leigja það út. Húsið er s.s. í garðinum hjá þeim en er sér inngangur og meira að segja sér innkeyrsla að því. Allt í kring eru allskonar kryddjurtir, ávaxtatré, allskonar blóm og tré, já og vel á minnst, kanínur og hænsni líka! Og voru báðar kanínumömmurnar að eignast unga, ein í gær og ein fyrir 3.vikum! 1975 var þetta litla sæta hús í danska blaðinu Bo Bedre. Það voru teknar myndir af húsinu og fólkinu inn í því og viðtal við parið að sjálfsögðu. Þetta var algjört hippahús á þeim tíma, enda ekta hippar í húð og hár þetta par. Þær eru mjög skondnar myndirnar í þessu blaði.Í dag er þetta nú ekki svo hippalegt lengur. Hjónin eru rosalega hjálpsöm og vilja hjálpa okkur eins mikið og hægt er, með hvað sem er. Maðurinn er nú algjör snillingur í höndunum og bauðst til dæmis til þess að smíða rúm fyrir okkur ef okkar kæmist ekki fyrir, en sjáum nú til með það. ;) Þau geta ekki beðið eftir að fá að kynnast okkur og held ég að þetta eigi eftir að vera hin skemmtilegasta reynsla að búa þarna! þetta er mynd að utan af húsinu í dag þarna á bakvið eru kanínurnar og hænsnin og þetta er önnur kanínumamman, hún á 4 unga sem líta nákvæmlega eins út og hún! bros og gleði frá Köben =D |